Fréttir af feisbúkk #3: Oj! Konur

by admin on July 27, 2011


“Nei, femínistar eru augljóslega öfgasamtök, vinnubrögðin eru algjörlega þau hin sömu og þekkjast hjá öllum öðrum öfgahópum. Svona nöttkeis eins og þessi Breivik hefði allt eins getað hafa sprottið þaðan.”
- Jakob Bjarnar Grétarsson


„…the destructive and suicidal “Sex and the City” lifestyle (modern feminism, sexual revolution) which we are taught to revere as the truth. In that setting, men are not men anymore, but metro sexual and emotional beings that are there to serve the purpose as a never- criticising soul mate to the new age feminist woman goddess. The perfect matriarchy has now been fulfilled and complete equality has finally been achieved. The fact that mankind will seize to exist within three generations with this type of regime is irrelevant. Long live cultural Marxism!“
- Anders Behring Breivik

„A feminist culture will eventually end up being squashed, because the men have either become too demoralised and weakened to protect their women, or because they have become so fed-up with incessant ridicule that they just don’t care anymore. If Western men are pigs and “just like the Taliban” no matter what we do, why bother? Western women will then be squashed by more aggressive men from other cultures, which is exactly what is happening in Western Europe now. The irony is that when women launched the Second Wave of Feminism in the 1960s and 70s, they were reasonably safe and, in my view, not very oppressed. When the long-term effects of feminism finally set in, Western women may very well end up being genuinely oppressed under the boot of Islam. Radical feminism thus leads to oppression of women.“
- Fjordman (wikipedia)

OMG! Fundið ljóð

by admin on June 27, 2011

Bara ýta á enter reglulega og þá er komið ljóð.

(Takk Gunnar Marel sem fann þetta hér)

Og eikkva um kellingar!

by admin on June 25, 2011

Hefur mér í raun tekist eitthvað með þessu bloggi mínu? Nýtast þessar færslur til nokkurs? Kannski til sjúkdómsgreiningar á höfundi en…

Hvað hefur raunverulega áunnist með þessu bloggi?

Ríkisskuldir fara sívaxandi, atvinnuleysi er ákaflega mikið, fátækt einstaklinga er engu minni en áður – hvaða öflugi her er það sem streitist á móti því góða starfi sem ég er að vinna? Ég er búinn að blogga ákaft til uppbyggingar og ekkert virðist ganga. Ég spyr aftur: Hvaða öflugi her er það sem streitist á móti? Og nú í hástöfum: HVAÐA ÖFLUGI HER ER ÞAÐ SEM STREITIST Á MÓTI FÆRSLUM MÍNUM?

Viðvörunarbjöllur hringja.

„Herra dómsmálaráðherra, það er annað ljóðskáld á þrítugsaldri farið að blogga einhverja óskiljanlega þvælu.“
„Ji, við skulum ekki vanmeta getu fólks til að finna speki í röfli skálda. Auknar fjárveitingar til lögreglunnar!“

Við skulum ekki rökræða meira. Ég er ekki að reyna höfða til vitsmuna dætra ykkar. Híhí. Ég er bara að þjösnast áfram þar til þær taka við mér.

Plís, plís, plís, plís, plís. Ég get verið sniðugur og ég get lært að elska. Ég er viss um að þú getir kennt mér það. Ég skal hætta að vera svona tilgerðarlegur. Núna er kominn tími fyrir eitthvað nýtt. Eitthvað skemmtilegt. Eitthvað innihaldslaust.

Hva’ með sambandsmál í bleikt.is stíl?

„Lommi eru óhræddur við að segja sannleikann“

Konur eru hórur!

„Lommi er dropout úr kynjafræði:)“

Hórur sagði ég!

„Hann meinar þetta ekki, hann er femínisti. “

Stelpur, rólegar! Ég má alveg kalla ykkur hórur, ég var í kynjafræði. Mar er alveg fáranlega meðvitaður. Ég skil konur. Virði. En er samt ekki með falska kynvitund eins og sumir femma-hommar. Bara með hann beinstífann að hugsa um jafnrétti. Jafnréttið okkar.

Meira um kellingar seinna.

Fréttir af feisbúkk:

by admin on June 21, 2011

Kidz, slappið af, þetta sólarlausa díki er ekki lengur kúl. „Raunveruleikinn“ breytti feisbúkk í kalda lummu.

Kosturinn við feisbúkk var leikgleðin. Að fólk fékk að haga sér eins og fífl í einhverskonar veruleika sem gerði ekki sömu kröfur til notenda sinna og „kjötheimurinn“. Hægt var að fiffa félagsleg-klúður og ó!ó! með því að splæsa í broskalla og „læk“. Málið leyst.

En nú eru foreldrar ykkar og útbrunnir blaðamenn komnir til að fylgjast með ykkur.

Við erum orðin meðvituð um okkur á feisbúkk. Meðvituð um að við erum ekki einungis það sem við lækum og kommentum, heldur erum við líka það sem vinir okkar læka og kommenta. Já, það þarf að huga að mörgu – að lokum fer jafnvel meiri tími í persónusköpun á feisbúkk en úti á götu/vinnu/heimilli.

Ef við leggjum svo mat á feisbúkk og raunveruleikann, hvað má græða á góðri tímasókn, þá er erfitt að finna einhver haganlega gerð verðmæti í virkni á smettinu þegar það er búið að útiloka alla leikgleði.

Ekki kúl. Nú er bara hallærið og töff-kreppan eftir. Megi sá glataðasti standa einn eftir á feisbúkk.

Munið:

by admin on June 20, 2011

Það á bara enginn skilið að fá læk.

Uppfært:OK kannski þetta.

Gagnslausir vindar

by admin on June 18, 2011

Dellan í sætum stelpum

by admin on June 13, 2011

„Sætar stelpur“ samkvæmt Google

„Maður var gapandi af undrun yfir dellunni sem hún var að hella sér út í til að byrja með, en þegar á líður myndina verður hún frekar sæt.“
-Um kvikmyndina Mótvægi á MBL.IS

Fyrir landsdóm með mig

by admin on June 8, 2011

Ég vil að landsdómi sé kunnugt að ég tók þátt í kapítalismanum, góðærinu öllu saman, meðal annars með því að vinna á auglýsingastofu sem vann með öðrum að kosningaherferð Sjálfstæðisflokksins 2007 (Hún hét Kapítal). Geir er ekki félagi minn, en ég andmælti honum aldrei kröftuglega og skrifaði einu sinni ljóð með honum. Hin breiða samstaða um kapítalismann verður ekki rofin með því að pönkast á einum ræfil.

Dæmið mig líka!

Nýtt hugtak

by admin on June 7, 2011

Ath. Lesendur með mikið táknrænt kapítal í formi menntunar skilji forréttindi sín eftir við innganginn, forréttindi sem þeir hafa að öllum líkindum frá foreldrum sínum. (Já já þið eruð eflaust líka dugleg og klár, en ekki gleyma forskotinu!)

Kratifas híerarkí þar sem prófgráður/hæfni ráða því hvar þú lendir. Eins og allir vita þá er EKKERT HLUTLÆGT/SAKLAUST við prófgráður/hæfni

Sjá einnig kratikal

(Þetta hef ég frá Ingólfi)

Hlustandi hafði samband og sagði að krató-fasókismi væri notað um þetta í sinni sveit.

„Ég veit að við erum sammála“

by admin on June 7, 2011

„Fjölskyldumaður með ferskar hugmyndir“
„…já, ég veit við erum sammála“
„Það þarf ljóðskáld á þing, fremur en lögfræðing…“